Archive for júlí, 2008

Jarðarför

föstudaginn, júlí 18th, 2008

Nú á eftir verður haldin minningarathöfn í Digraneskirkju um gamlan og kæran vin frá menntaskólaárunum, Pétur Leif Pétursson. Ég skrifaði einhver máttlítil minningarorð um hann í Morgunblaðinu í dag, en áður hafði ég gert aðra tilraun til að skrifa eftir hann á bloggi Tóta Leifs. Hjálmar skrifar líka nokkur falleg orð um hann á sínu bloggi.

Hásumardraumar

miðvikudaginn, júlí 9th, 2008

Sumar búðir eru betri en aðrar búðir, sagði ég við valkyrjuna dóttur mína í dag og hún samsinnti mér og hló. Hún sofnaði í kvöld við að ég las í fjórða skiptið fyrsta samtal Brynhildar og Guðrúnar í Völsunga sögu. Þá sögu heyrði ég fyrst er móðuramma mín Ingibjörg Einarsdóttir Vestmann las fyrir mig, en hún kenndi mér meira en nokkur önnur manneskja hefur kennt.

Ég hef mikið verið að rifja upp punk og new wave tímabilið nýlega og sé núna að besta tónlistin kom frá stelpunum, sem gerðu margar hverjar rokk á heimsmælikvarða, t.d. Siouxie og svo náttúrlega þessi hér í þútúbunni að neðan, en ég er núna skotinn í henni:

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video