Hásumardraumar
Sumar búðir eru betri en aðrar búðir, sagði ég við valkyrjuna dóttur mína í dag og hún samsinnti mér og hló. Hún sofnaði í kvöld við að ég las í fjórða skiptið fyrsta samtal Brynhildar og Guðrúnar í Völsunga sögu. Þá sögu heyrði ég fyrst er móðuramma mín Ingibjörg Einarsdóttir Vestmann las fyrir mig, en hún kenndi mér meira en nokkur önnur manneskja hefur kennt.
Ég hef mikið verið að rifja upp punk og new wave tímabilið nýlega og sé núna að besta tónlistin kom frá stelpunum, sem gerðu margar hverjar rokk á heimsmælikvarða, t.d. Siouxie og svo náttúrlega þessi hér í þútúbunni að neðan, en ég er núna skotinn í henni:
9. júlí 2008 klukkan 8:41
Ahhh…
Ég man sko eftir þessu!
9. júlí 2008 klukkan 10:35
Svo var ég að rekast á þessa snilld sem ég skil ekki hvers vegna ég sá ekki á sínum tíma, amk var þetta aldrei í sjónvarpinu, eins og Lene Lovich hafði nú verið spiluð mikið þar nokkrum árum áður.
10. júlí 2008 klukkan 23:37
Já ég var einmitt mjög hrifin af tónlist Lene Lovich á mínum pönkárum. Kannski það sé kominn tími til að rifja þetta tímabil upp á ný.
23. júlí 2008 klukkan 1:57
Grúsja: I Think We’re Alone Now