Archive for október, 2008

Kapítalisminn er eins og norskur blár páfagaukur

föstudaginn, október 31st, 2008

Kapítalisminn er eins og norskur blár páfagaukur, við segjum að hann sé dauður, en þeir sem vilja selja okkur hann segja að hann sé bara að hvíla sig.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Ekki tímabært

föstudaginn, október 31st, 2008

Þær raddir hafa heyrst að það sé ekki tímabært að ganga til kosninga nú.

Að vandlega íhuguðu máli sé ég að það er nokkuð til í því. Þess vegna ætti Byltingardómstóll Alþýðunnar að stjórna þar til gengið verður til kosninga.

Ekki vilduð þið láta núverandi stjórn eiga sig þangað til?

Hvað er viðunandi fjöldi heimilislausra á Íslandi?

fimmtudaginn, október 30th, 2008

Ég var í dag að heyra af kunningjakonu minni sem er með myntkörfuhúsnæðislán. Afborganirnar af láninu voru 110.000 krónur á mánuði, en eru núna komnar upp í 211.000 krónur. Enginn veit nema það tvöfaldist aftur fyrir jól.

Fjöldi íslendinga er í sömu stöðu, eða sambærilegri stöðu. Ég tel mig heppinn, og þó er ég ekkert í sérstaklega góðum málum, en það er þó ekkert miðað við þann vaxandi fjölda fólks sem mun sennilega komast á vonarvöl innan nokkurra mánaða.

Ég hef miklar áhyggjur af því hvað mun verða af samfélagi okkar ef ekki verður gripið inn í. Íbúðalánasjóður er vanur að senda fasteignir í uppboðsmeðferð ef þrír gjalddagar falla; ef til vill bíða bankarnir skemur. Nú hefur fasteignaverð fallið um ef til vill 40% síðan fyrir tveimur árum síðan. Fjöldauppboð á fasteignum mun steypa verðinu niður í ekki neitt, og ekkert mun fást upp í kröfur, sem halda þó áfram að hvíla á skuldaranum. Hin vaxandi öreigastétt verður rekin út af heimilum sínum, sem munu síðan ekki seljast á dauðum markaði. Örvæntingin í þjóðfélaginu eykst og verður að vandamáli út af fyrir sig, svo að ekki sé minnst á kynslóð barna sem mun vaxa úr grasi með ör fátæktarinnar á sálinni.

Hverjum er slíkt ástand til heilla?

Söngnám er mannrækt

fimmtudaginn, október 30th, 2008

Stundum heyrir maður gagnrýni á frímúrara. Þá stekkur einhver fram og segir að þetta séu mannræktarsamtök, og viti menn, málið er dautt.

Síðasta fimmtudag var ég hins vegar að upplifa mestu mannrækt sem ég get ímyndað mér. Ég fór í söngtíma.

Ég ætla sko aftur í kvöld.

Vandinn felst í skynjun okkar

föstudaginn, október 17th, 2008

Ef við höldum að bankinn okkar eigi nóga peninga, þá á hann nóga peninga. Þegar fólk heldur að peningarnir séu af skornum skammti (sem þeir eru alltaf og án undantekninga) þá verður yfirleitt bankaáhlaup og peningarnir (sem voru í rauninni aldrei til og hafa aldrei verið til) hverfa eins og fyrir galdra.

Stærðfræðingurinn Pascal sólundaði æfi sinni í að verja kristna trú gegn vantrú. Hann hefur sennilega sjálfur verið undir miklum áhrifum frá trúleysingjum, enda lifði hann og hrærðist meðal allra mestu trúleysingja sinnar samtíðar. Á einum stað gefur hann þeim ráð sem geta ekki trúað: Þú skalt bara þykjast trúa og gera allt eins og trúað fólk gerir; ganga til kirkju, stökkva á þig vígðu vatni og biðja bænir og þú munt að lokum forheimskast (sem virðist hafa verið takmarkið).

Ef við mætum framtíðinni með bjartsýni mun allt blessast.

Að lokum mæli ég með smásögu Borgesar Tlön, Uqbar, Orbis Tertius og svo þessu snilldarlagi eftir Dr. Winston O’Boogie:

Lausn á efnahagsvandanum

mánudaginn, október 13th, 2008

Við sendum víkingasveitina til Cayman-eyja, þar sem þeir tæma eyjarnar af öllum fjármunum og koma með heim til Íslands fyrir kvöldmat.

Þetta ætti að vera einfaldara en Lindisfarne.

Grátlega fyrirsjáanlegt

laugardaginn, október 11th, 2008

Í hremmingum okkar virðast þeir sem drógu okkur inn í þær hrópa hæst um að þeir viti hver leiðin sé út úr ógöngunum. Þeir minna mig á þennan náunga hér. Fólk hrópar síðan um Rússagull og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn á sama hátt og þeir sem hrópa „við verðum að gera eitthvað; þetta er eitthvað, þess vegna verðum við að gera það.‟

Aðferðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru venjulega þannig að þeir koma að sjúkrabeði sjúklings sem þjáist af bráðri frjálshyggjueitrun og ráðleggja strax einu lækninguna sem þeir kunna, eða meiri frjálshyggju. Afsakið, en við erum þegar með hrossalækni sem fjármálaráðherra og þurfum ekki meiri svona hrossalækningar.

Ég tel að vandamálið sé að sjálft peningakonseptið sé gallað svona eins og phlogiston-kenningin var gölluð. Þeir sem aldir eru upp í trúnni og eiga erfitt með að hugsa út fyrir kassann munu náttúrlega berjast með kjafti og klóm til síðasta blóðdropa til að halda í firrur sínar. Slíkt er alltaf grátlega fyrirsjáanlegt.