Óður Eilífðar
Ég syng í Kór Byltingarinnar sem ásamt Hópreið Lemúranna og undir stjórn hins slynga organista Harðar Bragasonar flytja í Iðnó í kvöld Óð Eilífðar, sem byggður er á samnefndu kvæði Þorgeirs Rúnars Kjartanssonar, eða Gogga eins hann var kallaður af vinum sínum, en nú í dag eru tíu ár síðan hann lést.
Þangað mætir allt gott fólk, einkum og sérílagi allir gamlir aðdáendur hljómsveitarinnar Júpíters, en hún er besta danshljómsveit sem Ísland hefur alið.
6. nóvember 2008 klukkan 13:26
Með fullri virðingu fyrir uppákomunni þá blöskrar mér hvað þetta er plöggað svakalega.
6. nóvember 2008 klukkan 13:33
Ég sem hélt að þetta ætti eftir að fara framhjá flestum.
6. nóvember 2008 klukkan 13:35
Allir fjölmiðlar, Kastljós, Kilja, Morgunvakt og ég veit ekki hvað búnir að tyggja þetta ofaní fólk.
6. nóvember 2008 klukkan 13:38
Ég lifi svo mikið á brúninni að ég hef misst af því öllu.
6. nóvember 2008 klukkan 13:47
Flott að þetta sé plöggað, ég virkilega vona að hellingur af fólki mæti. Finnst ekkert að því að svona hlutir veki athygli. Nógu mikið heyrir maður um einhverja boltaleiki og álíka, hvers vegna má ekki heyrast af listviðburði?
6. nóvember 2008 klukkan 13:51
Það má auðvitað alveg heyrast af listviðburðum (og mín vegna má líka leggja íþróttaumfjöllun niður komplett) Sumt virðist bara ná mjög mikilli athygli fjölmiðlafólks og annað alls ekki. Ég er allavega búin að fá leið á þessu framtaki fyrirfram vegna ofgnóttar umfjöllunar
6. nóvember 2008 klukkan 15:12
Mér líst mjög vel á þetta. Hef greinilega misst af öllu plöggi en sá hógværa tilkynningu í Fréttablaðinu. Greinilegt að þarna er gott skáld á ferðinni. Ætla örugglega að mæta.