Hvers vegna fattaði ég ekki þetta fyrr?

Ég skil ekki hvers vegna ég uppgötvaði ekki hljómsveitina Laibach árið 1981. Ég var einmitt þá að hugsa á nákvæmlega sömu nótum og þeir.

Í byrjun árs 1981 gaukaði frænka mín að mér vinnu. Ég átti að starfa við manntalið. Mér fannst það frábært. Ég fann mér straufría skyrtu frá því 1950, gráa að lit og lét burstaklippa mig. Síðan gekk ég hús úr húsi með pókerfés og eyðublöð á spjaldi og spurði nærgöngulla spurninga.

“Hvað eru margar útgönguleiðir á þessu húsi?”

Unga parið í nýuppgerða timburhúsinu sínu á Njálsgötunni leit flóttalega hvort á annað.

“Hvers vegna viljið þið vita það?”

“Þeir láta okkur ekki vita allt, en ykkur að segja býst ég við að það sé til þess að lögreglan viti hvar fólk sé að finna þegar neyðarástand skapast” svaraði ég án þess að missa úr eitt andartak og brosti sviplaust með pókerandlit.

Ég fann lyktina af örvæntingunni.

YouTube Preview Image

Ég held samt að ég hafi bjargað laibach-karmanu þegar ég seldi HAM fyrsta hljómborðið sitt 1987 eða 1988..

Leggðu orð í belg