Ég er með tillögu.
Landinu verði skipt í 21 kjördæmi þar sem hvert hefur um það bil 10000 atkvæðabæra einstaklinga. Hver sem er má bjóða sig fram og það má jafnvel skrifa inn nöfn á kjörseðilinn. Hver kjósandi kýs þrjá einstaklinga sem hafa boðið sig fram í því kjördæmi eða sem eru til heimilis í kjördæminu. Sérhver má einungis bjóða sig fram í því kjördæmi þar sem þeir eiga lögheimili. Röð kjörinna frambjóðenda á kjörseðli skiptir ekki máli. Þeir þrír sem fá flest atkvæði í hverju kjördæmi komast inn á Alþingi. Ríkisstjórnin er síðan alltaf 9 manna hópur úr röðum alþingismanna sem er kjörinn af alþingismönnum sjálfum þannig að sérhver alþingismaður kýs fimm sem hann vill helst fá inn í ríkisstjórn (viðkomandi verða að bjóða sig fram til stjórnarsetu). Þeir níu sem fá flest atkvæði mynda ríkisstjórn og víkja af þingi.
JÁ! Gúddera það
Það er spurning hvort það þyrfti að hafa fleiri úr hverju kjördæmi til að vera viss um að fá nóg af hugsjónafólki inn á þing.