Sjöundi áratugurinn
fimmtudaginn, maí 25th, 2006Þótt ég sé fæddur árið 1963 er svo undarlegt með mig að ég hef elskað áratuginn sem ég fæddist í allar götur síðan.
Ég elska allt frá sjöunda áratugnum, “sixtís”, en þó umfram allt tónlistina. Alveg frá upphafi áratugarins og til loka hans.
Ég lærði að lesa þegar ég var fjögurra ára og varð strax mjög hraðlæs og las bækur, tímarit og blöð af mikilli áfergju. Sjónvarp var til á mínu heimili frá því áður en Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar. Móðir mín hlustaði oft á útvarp á daginn, á kvöldin var horft á sjónvarp, leiknar hljómplötur eða pabbi spilaði á trompetinn sinn. Yfirleitt var amk tvennt af þessu í gangi.
Einhvern veginn síaðist andblær sjöunda áratugarins inn í barnssálina og hefur æ síðan búið þar eins og minning um glataða paradís.