Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur
sunnudaginn, júlí 16th, 2006Getur einhver sagt mér hvers vegna kaninka.net svarar ekki? Er bara búið að slökkva á henni rétt sisona? Hún datt út um hádegisbilið í gær og er ennþá úti.
Getur einhver sagt mér hvers vegna kaninka.net svarar ekki? Er bara búið að slökkva á henni rétt sisona? Hún datt út um hádegisbilið í gær og er ennþá úti.
Með bakveiki verða kyrrsetur stuttar og einbeiting slök.
Eigi er þó allt með svo öllu illt að eigi boði nokkuð gott; mér skilst að ég geti fengið þessa veikindadaga skráða sem slíka og fengið nýtt frí út á þá.
Skrýtið hvernig smá kvef getur snúið lífi manns á hvolf og minnt mann óþyrmilega á að maður er ekki alveg almáttugur.
Einn er sá ósiður íslendinga sem fer ósegjanlega mikið í taugarnar á mér, en það er hvernig þeir standa hlið við hlið í rennistiga. Eins og allir þeir sem til útlanda hafa komið hafa tekið eftir, þá gerir maður ekki svoleiðis lagað. Fólk stendur í einfaldri röð hægra megin svo þeir sem vilja flýta sér geti hindrunarlaust gengið eða hlaupið um stigann. Annars væri lítið gagn í svona stiga, því hann hreyfist mikið hægar en maður gæti gengið sjálfur, ekki satt?
Ég skora á fólk að reyna að standa vitlausu megin í rennistiga í London, t.d. á Holborn lestarstöðinni. Venjan er að fyrsti maður sem kemur að sveitalúða sem stendur vitlausum megin lemji hann eða sparki honum burt svo heiðvirt fólk geti komist leiðar sinnar.