Archive for the ‘Tilkynningar’ Category

Hið stóra samhengi hlutanna

sunnudaginn, september 3rd, 2006

Það er óhjákvæmilegt að næsta ríkisstjórn verði vinstri stjórn. Sjálfstæðisflokkurinn myndi aldrei taka neitt annað í mál, því annars þyrftu þeir sjálfir að stýra þjóðarskútunni út úr þeim ógöngum sem þeir hafa nú komið henni í.

Vinstri stjórnir hafa alltaf verið alibi fyrir undangengnar hægri stjórnir. Þegar kemur að skuldadögunum eftir langvarandi hægri stjórn henda þeir stjórnartaumunum til vinstri og setjast síðan í baksætið og fara að gagnrýna.

Haustið er komið

mánudaginn, ágúst 28th, 2006

Ég man ekki nákvæmlega hvenær, en það var þegar það kólnaði. Sama dag  tók ég eftir því að lauf á birkitrénu í bakgarðinum mínum eru orðin gul.

Ég held að þetta hafi verið fyrir viku síðan.

Ritskoðun

laugardaginn, júlí 29th, 2006

Að gefnu tilefni hef ég tekið upp nýja ritstjórnarstefnu: hér verður ekki framar hægt að minnast á ýmis vinsæl stinningarlyf, róandi lyf eða kvalastillandi. Öllum slíkum athugasemdum verður sjálfkrafa eytt.

Ég ætla ekki að láta netlyfsala og aðra stórglæpamenn misnota þennan vef til að googlebomba sitt skran.

Til hamingju með daginn!

föstudaginn, júlí 28th, 2006

Í dag er Kerfisstjóradagurinn, sjá www.sysadminday.com

Sumarið er komið

miðvikudaginn, júlí 19th, 2006

Ég held ég fari út að hjóla og kannski slappa af á Austurvelli

Heilsan

sunnudaginn, júlí 16th, 2006

Mér líður mikið betur. Núna er ég næstum farinn að geta snert tærnar með lófunum aftur. Ég þakka meðal annars æfingum sem ég þróaði þegar ég var sem verstur á miðvikudaginn. Ég býst við að geta farið að krækja saman fótunum bak við hnakka aftur fljótlega.

Til útskýringar

föstudaginn, júlí 14th, 2006

PDF-file