Archive for the ‘Tilkynningar’ Category

Bless, Cannondale

miðvikudaginn, júlí 5th, 2006

Ég var að leggja mínu trausta Cannondale M-400 hjóli í síðasta sinn eftir rúmlega 10 ára notkun. Ekki var það nú merkilegt hjól sem ég fékk mér í staðinn, en þó. Það er fyrsta hjólið sem ég eignast sem er með dempurum (sem mér finnst óþarfa pjatt) og líka það fyrsta með diskahemlum. Þetta er sem sagt Prostyle Puma frá Bónusveldinu. Í leiðinni keypti ég Prostyle Lucky Cat handa stelpunni og hún er núna hamingjusamasta stelpa í heimi, eða amk gríðarlega montin.

Eitt finnst mér samt undarlegt með þessi Prostyle hjól. Á hverju einasta hjóli sem Hagkaup hefur selt undanfarin nokkur ár hefur staðið “www.prostylebikes.com” en prostylebikes.com er lén sem er skráð á “Baug hf” og kontaktaddressan er “jst@baugur.is”. Þessi vefur hefur aldrei virkað, vegna þess að lénið er ekki skráð á nafnaþjónana sem eru skráðir fyrir því, en það eru “tommy.hagkaup.is” og “ns1.xnet.is”. Ennfremur virkar kontaktaddressan ekki, þar sem netföng sem enda á @baugur.is virka yfirhöfuð ekki, þar sem þau hafa ekki neinn skráðan póstþjón (MX, eða Mail eXchanger) og netþjónninn “baugur.is” er ekki póstþjónn.

Ætli þetta sé með ráðum gert, eða ætli það sé eitthvað endemis glóruleysi?

Fregnir af andláti mínu eru stórlega ýktar.

laugardaginn, júní 17th, 2006

Stundum þarf maður smá blogg-frí, rétt eins og sumarfrí frá vinnu. Þetta tvennt þarf ekkert að fara saman.

Ég hef líka verið að velta fyrir mér tilgangi þessa bloggs. Upphaflega hélt ég að ég myndi helst tala um tæknileg viðfangsefni, en það snerist fljótt í almennt snakk um sjálfan mig.

Auðvitað er alltaf athyglisvert að lesa þegar fólk skrifar um eitthvað sem það hefur áhuga á.

Til hamingju með afmælið

sunnudaginn, maí 7th, 2006

Afi minn, Stefán Bjarnason verkamaður, er 96 ára í dag.

Andlátsfregn

sunnudaginn, apríl 30th, 2006

Þar sem ég hef ekkert séð um þetta annars staðar en á Daily Kos, ætla ég að tilkynna þetta hér: John Kenneth Galbraith lést á sjúkrahúsi í Cambridge, Massachusetts í gær. Hann var 97 ára að aldri.