Brjálaður Anarkisti

Máni er látinn
Ég hefði átt að segja ykkur það fyrr, eða á laugardaginn, þegar fréttirnar bárust mér, en það var einhvern veginn allt of mikið að gerast þann dag og þar á ofan hef ég forðast tilhugsunina, en Máni er dáinn. Um hálfþrjúleytið á laugardag, Menningarnótt Reykjavíkur, hringdi kona frá Kattholti og sagði mér að Máni væri dáinn og hefði orðið fyrir bíl. Það sló mig, en loks hafði ég fengið staðfestingu á því sem mig hafði grunað. Mér tókst þó að halda sönsum og fór að leita svara. Viðmælandi minn virtist hafa langa og kannski ekkert svo ánægjulega reynslu af því að bera þessar fréttir til fólks. Hún virtist sjálf taka dauða kattar jafn alvarlega og dauða þjóðhetju og vera við það að bresta í grát á hverri stundu. Líkamsleifar Mána hefðu borist þeim og verið auðkenndar þann 14. sama mánaðar en ekki hefði tekist að ná í mig. Ég reyndi að spyrja hvernig hefði staðið á því, þar sem ég hef ekkert “missed call” á þessu tímabili, en þá fór hún í vörn og spurði mig hvort ég ætlaði að fara að skamma hana fyrir þetta, svo ég lét það eiga sig, enda skiptir það kannski ekki mestu máli. Ég spurði síðan hvar þetta hefði gerst eða hvenær, en þá sagði hún mér að það sem lögreglan gerir sé að henda kattarhræjunum í gám sem sé síðan tæmdur á viku fresti og sendur upp í Kattholt þar sem þeir eru auðkenndir eftir örmerki. Sem sagt, ég mun ekki einu sinni fá að vita hvar þetta gerðist eða hvenær.

Ég sá Mána síðast á fimmtudaginn 7. ágúst. Reyndar fer mér að finnast skömmu eftir það eins og reimt sé í íbúðinni (ég veit að kunningjum mínum í Vantrú mun þykja afleitt að annar eins trúleysingi og ég skuli segja þetta). Ég hringi síðan á mánudaginn 11. (eða var það þriðjudaginn 12.?) til lögreglunnar og spyrst fyrir hvort tilkynnt hafi verið um dáinn kött í Norðurmýri en fæ fáar upplýsingar.  Röddin í símanum virtist sem henni þætti ekki mikið til um einhvern dauðan kött út í mýri.

Mér finnst þetta fyrir neðan allar hellur. Ekki nóg með að það er ekki einu sinni skrifuð skýrsla um þennan harmræna atburð, þá er jarðneskum leifum fjölskyldumeðlimsins fleygt eins og einhverju sorpi í gám og þær látnar úldna þar saman við aðrar leifar af sama toga þar til þær eru sendar upp í Kattholt til að  hægt sé að lesa örmerkið.

Yngri dóttir mín grét við fregnina. Eldri börnin setti hljóð um stund.

Kvöldið var annars mjög ánægjulegt fyrir mig og mína. Kærastan, börnin og tengdasonurinn komu í mat. Síðan fórum við á tónleika á Klambratúni og þar næst niður að Sæbraut að skoða flugeldana. Eftir áratugalanga baráttu hefur mér loks tekist að gera eitthvað alveg eins og allt venjulegt fólk.

I put a smell on you
Í miðri kreppunni stend ég í stórframkvæmdum. Undanfarið hefur vaskur hópur verktaka plantað græjum og gröfum í kring um heimili mitt og býst til þess að grafa síki í kring um bygginguna. Það á að leggja dren. Og nýja skolplögn. Og það má alveg byrja setningu, (og hafa og á eftir kommu) og enda á og.

Annars er það helst að frétta að ég hef áhyggjur af honum Mána mínum, hann hefur ekki komið heim í 10 daga.

Öryggisreglur

Bloggleti
Ég hef stundum velt því fyrir mér hvað annað einkennir þau tímabil sem ég þjáist af bloggleti. Mér hefur ekki enn tekist að greina ástandið á neinn þann hátt sem eykur skilning minn á því af hverju ég fæ mig ekki til að skrifa neitt stundum. Um daginn fór ég t.d. í ferð til Lundúna með yngri dóttur minni. Þótt ferðin hafi verið frábær í alla staði, og þó sérstaklega fannst mér það gefandi að finna hversu mikið ástfóstur stelpan lagði við Lundúnaborg, þá hefur mig samt ekkert langað til að skrifa neitt um það. Ég mun kannski gera það á næstunni, en þangað til getið þið skoðað myndir sem ég setti á flickr.

Ármann hittir naglann á höfuðið, sem endranær.

Bíðið hér, nánari fréttir bráðum …
<object class="embed" width="425" height="350" type="application/x-shockwave-flash" data="http://www.youtube.com/v/1fxhebNeFXk"><param name="wmode" value="transparent" /><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/1fxhebNeFXk" />You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video</object>

Ég var að koma frá London. Hér er bara skítkalt, hálfgert frost. Dóttirin sagði á hverjum degi að hún ætli að búa í London þegar hún verður stór. Ferðasagan kemur síðar …

Jarðarför
Nú á eftir verður haldin minningarathöfn í Digraneskirkju um gamlan og kæran vin frá menntaskólaárunum, Pétur Leif Pétursson. Ég skrifaði einhver máttlítil minningarorð um hann í Morgunblaðinu í dag, en áður hafði ég gert aðra tilraun til að skrifa eftir hann á bloggi Tóta Leifs. Hjálmar skrifar líka nokkur falleg orð um hann á sínu bloggi.

Hásumardraumar
Sumar búðir eru betri en aðrar búðir, sagði ég við valkyrjuna dóttur mína í dag og hún samsinnti mér og hló. Hún sofnaði í kvöld við að ég las í fjórða skiptið fyrsta samtal Brynhildar og Guðrúnar í Völsunga sögu. Þá sögu heyrði ég fyrst er móðuramma mín Ingibjörg Einarsdóttir Vestmann las fyrir mig, en hún kenndi mér meira en nokkur önnur manneskja hefur kennt.

Ég hef mikið verið að rifja upp punk og new wave tímabilið nýlega og sé núna að besta tónlistin kom frá stelpunum, sem gerðu margar hverjar rokk á heimsmælikvarða, t.d. Siouxie og svo náttúrlega þessi hér í þútúbunni að neðan, en ég er núna skotinn í henni:

<object class="embed" width="425" height="350" type="application/x-shockwave-flash" data="http://www.youtube.com/v/Ug0V1kUq3Sw"><param name="wmode" value="transparent" /><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/Ug0V1kUq3Sw" />You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video</object>